Á
Sprengisandi
Ríðum ríðum rekum yfir sandinn,
rennur sól á bak við Arnarfell.
Hér á reiki er margur óhreinn andinn,
úr þvi fer að skyggja á jökulsvell.
Drottinn leiði drösulinn minn,
drjúgur verður siðast áfanginn.
Þei, þei, þei, þei. Þaut í holti tófa
Þurran vill hún blóði væta góm,
eða líka einhver var að hóa
underlega digrum karlaróm.
Útilegumenn í Ódáðahraun
eru kannski að smala fé á lavn.
Ríðum ríðum rekum yfir sandinn,
rökkrið er að síga á Herðubreið.
Álfadrottning er að beizla gandinn,
Ekki er gott að verða á hennar leið.
Vænstra klárinn vildi ég gefa til
að vera kominn ofan í Kiðagil.